11.4.2024
Drónabannssvæði stækkað - bann í yfir 60 metra hæð til 30. apríl
Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug yfir 60 metrum yfir jörð og ofar. Bannið nær nú yfir 2 sjómílna radíus sem var áður 2 kílómetra radíus.