Fréttir » EasyJet hefur flug til Íslands í vor
09.11.2011

Easy Jet, stærsta flugfélag Bretlands, kynnti í dag að það hyggist hefja flug til Íslands næsta vor. Flogið verður milli Keflavíkurflugvallar og Lutonflugvallar í London og verður jómfrúarflugið þriðjudaginn 27. mars 2012. EasyJet mun fljúga þrisvar í viku, þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga, allt árið um kring. Sala á flugmiðum til London hefst í dag og segir félagið að viðskiptavinum gefist færi á að kaupa flugmiða á rúmar 6000 krónur aðra leið og tæpar 11.000 krónur báðar leiðir, skattar og gjöld innifalin.
Flug easyJet til Keflavíkur fjölgar ferðavalkostum verulega um Keflavíkurflugvöll. Frá Luton flýgur easyJet til 36 annarra áfangastaða í Evrópu og Miðausturlanda og félagið er einnig með starfsemi á flugvöllunum í Gatwick og Stanstead og flýgur þaðan til ríflega 120 áfangastaða. Með tilkomu Íslands sem áfangastaðar flýgur easyJet til 30 landa og er eitt stærsta flugfélag í Evrópu. Flugvélafloti félagsins telur yfir 200 flugvélar og árlegur farþegafjöldi er yfir 55 milljónir farþega á 580 flugleiðum.
Ferðalangöngum sem vilja bóka flug með félaginu, gistingu eða aðrar ferðir er bent á ferðaþjónustuvef inn www.easyJet.com/holidays.
