TáknVeður í Keflavík 3°c 4 m/s
Sjá allar fréttir RSS  

Flugslysaáætlun

Flugslysaáætlun Keflavíkurflugvallar segir fyrir um skipulag og stjórnun aðgerða í kjölfar flugslyss á flugvellinum eða í nágrenni hans. Áætlunin er unnin af almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, lögreglustjórunum á Suðurnesjum, almannavarnanefndum Keflavíkurflugvallar, Suðurnesja og Grindavíkur, flugvallarstjóranum á Keflavíkurflugvelli og landlækni í samstarfi við viðbragðs- og hagsmunaaðila. Flugvallarstjóri er formaður almannavarnanefndar Keflavíkurflugvallar. Annast hann virkni flugslysaáætlunarinnar í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra en lögreglustjórinn á Suðurnesjum fer með aðgerðastjórn.

Flugslysaáætlunin er virkjuð þegar flugvél lýsir yfir viðbúnaðar- eða hættuástandi eða flugvél brotlendir. Virkjun er tvískipt, annars vegar þegar um er að ræða flugvél með níu manns eða færri um borð og hins vegar þegar tíu eða fleiri eru um borð. Einnig er mögulegt að virkja áætlunina á hærra stiginu ef farmur flugvélar getur hugsanlega valdið almannahættu þótt níu manns eða færri séu um borð. Flugvallarstjóri hefur umsjón með reglubundnum æfingum einstakra verkþátta og að allir þættir áætlunarinnar séu æfðir að minnsta kosti á tveggja ára fresti í samvinnu við aðgerðastjórn og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Áætlunin hefur verið uppfærð með nýju verkþáttaskipuriti og skilgreiningu á viðbúnaðarstigum í samræmi við aðrar flugslysaáætlnanir og breytingar sem orðið hafa á lögregluembættum á Suðurnesjum og höfuðborgasvæðinu. Nýr kafli er í áætluninni um flugslys á só og nýjar fjarskiptarásir almannavarna hafa verið teknar í notkun ásamt nýju kortakerfi – ISNET 93.

FLUGSLYSAÁÆTLUN

KORT

KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR ISNET 93 (PDF 1,2MB)

KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR HLUTAKORT 1 (PDF 598KB)

KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR HLUTAKORT 2 (PDF 603KB)

KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR HLUTAKORT 3 (PDF 545KB)

KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR HLUTAKORT 4 (PDF 781KB)

REYKJANES ISNET 93 (PDF 4,5MB)

YFIRLITSMYND 2008 (PDF 0,2MB)