Öryggismál
Keflavíkurflugvöllur ohf. annast flugvernd og flugöryggi og tryggir að kröfum þar um sé framfylgt í stofnunum og fyrirtækjum sem koma að starfsemi í flugstöðinni. Öryggisverðir Keflavíkurflugvallar ohf. annast flugverndareftirlit á flugvellinum og flughlaðinu jafnframt því að annast öryggisleit við inngang að flugverndarsvæðinu.