21.3.2024
Tryggðu bílnum stæði í KEF um páskahátíðina
Þau sem hyggjast leggja leið sína í gegnum Keflavíkurflugvöll um páskana eru hvött til að bóka bílastæði við flugstöðina fyrir fram. Allar líkur eru á að langtímastæði við flugvöllinn verði fullnýtt í kringum páskahátíðina, enda ein stærsta ferðahelgi Íslendinga.