TáknVeður í Keflavík 4°c 2 m/s
Sjá allar fréttir RSS  

Lendingargjöld

Gjaldskrá fyrir Keflavíkurflugvöll

1. Gildissvið
1.1 Gjaldskrá þessi gildir fyrir afnot loftfara af Keflavíkurflugvelli.

2. Lendingargjald
2.1 Fyrir hverja skráða lendingu loftfars skal greiða gjald samsvarandi USD 8,15 fyrir hver byrjuð 1.000 kg af hámarksflugtaksmassa þess.

3. Stæðisgjald
3.1 Stæðisgjald er ekkert fyrir fyrstu 6 klst.
3.2 Fyrir næstu 24 klst. eða brot þar af skal greitt stæðisgjald samsvarandi USD 0,50 fyrir hver byrjuð 1.000 kg af þunga loftfarsins.

4. Flugverndargjald
Flugverndargjald greiðist fyrir hvern farþega með loftfari frá Keflavíkurflugvelli. Undanþegin gjaldskyldu eru börn yngri en tveggja ára, skráðar áhafnir loftfara og þeir sem viðkomu hafa á Íslandi samkvæmt farseðli milli annarra landa og Norður-Ameríku.
4.1 Fullorðnir 1440 kr.
4.2 Börn 2-12 ára 660 kr.

5. Farþegagjöld
Farþegagjöld greiðast fyrir hvern brottfararfarþega með loftfari frá Keflavíkurflugvelli.
Undanþegin gjaldskyldu eru börn yngri en tveggja ára, skráðar áhafnir loftfara og þeir sem viðkomu hafa á Íslandi samkvæmt farseðli milli annarra landa og Norður-Ameríku.
5.1. Farþegagjald 1200 kr.
5.2. Farþegagjald, börn 2-12 ára 675 kr.
5.3. Þjónusta við fatlaða/hreyfihamlaða/PRM gjald 40 kr.

6. Gildistaka
6.1 Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt 71, 71a og 71b greinum loftferðalaga nr. 60/1998, ákvæðum 10. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um rekstur Keflavíkurflugvallar nr. 76/2008, sbr. lög um samruna opinberu  hlutafélaganna Flugstoða og Keflavíkurflugvallar nr. 153/2009 og reglugerð nr. 475/2008 um réttindi fatlaðra og hreyfihamlaðra einstaklinga sem ferðast með flugi.


Innheimt af flugafgreiðsluaðilum vegna Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar

Aðstöðugjald
Allir brottfarafarþegar sem fara frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar 700 kr.