TáknVeður í Keflavík 4°c 1 m/s
Sjá allar fréttir RSS  

Vöruskemma

Háaleitishlað 02 (633)

Starfsemi: Vöruskemma
Stærð: 1.339 m2

Byggingin var upphaflega byggð sem þjónustuhúsnæði og geymsla við flugvallarþjónustu. Byggingin er staðsett á flughlaðssvæði.

Einn hluti byggingar er járnbent steinsteypa, tveir hlutar bárujárnsklætt á stálgrind.

Húseignin er í ágætis ástandi. Austurendi byggingarinnar er til útleigu, vöruskemma samtals 558 m² að stærð.

Byggingin er innan viðkvæmasta hluta haftasvæðis flugverndar og nýting hennar því háð viðeigandi skilyrðum. Þessum hluta byggingar má koma út fyrir girðingu með færslu hennar.

Háaleitishlað 04 (632)

Starfsemi: Vöruskemma
Stærð: 1.861 m2

Byggingin var áður þvottahús og kæligeymslur fyrir varnarliðið.

Meginbygging er járnbent steinsteypa, aðliggjandi skemmur eru bárujárnsklæddar á stálgrind og einangraðar.

Byggingin þarfnast viðhalds og standsetningar. Byggingin nýtist sem vöruskemma, hægt er að skipta henni upp í einingar.

Byggingin er utan viðkvæmasta hluta haftasvæðis flugverndar.

Háaleitishlað 11 (798)

Starfsemi: Vöruskemma
Stærð: 901 m2

Byggingin var upphaflega byggt sem flugskýli fyrir orrustuþotur, síðar breytt í vöruskemmu.

Bárujárnsklætt á stálgrind, óeinangrað.

Húseignin er í ágætis ástandi. Ágætis keyrsluhurðar eru á húsinu 3x3m. Innangengt er milli byggingarhluta.

Byggingin er innan viðkvæmasta hluta haftasvæðis flugverndar og nýting hennar því háð viðeigandi skilyrðum.

Byggingin er að hluta í útleigu.

Háaleitishlað 13 (796)

Starfsemi: Vöruskemma
Stærð: 945,7 m2

Byggingin var upphaflega byggt sem flugskýli fyrir orrustuþotur, síðar breytt í vöruskemmu.

Bárujárnsklætt á stálgrind, óeinangrað.

Húseignin er í ágætis ástandi. Ágætis keyrsluhurðar eru á húsinu 3x3m, auk þess er stór hurð 12x4m annars vegar á norðurgafli. Innangengt er milli byggingarhluta.

Byggingin er innan viðkvæmasta hluta haftasvæðis flugverndar og nýting hennar því háð viðeigandi skilyrðum.

Byggingin er að hluta í útleigu.

Háaleitishlað 24b (879)

Starfsemi: Vöruskemma
Stærð: 104,9 m2

Upphaflega var byggingin geymsla undir tækjabúnað flugvallarþjónustu. Byggingin er staðsett á flughlaðssvæði.

Samlokueiningar á stálgrind.

Byggingin er í ágætis ástandi. Byggingin er einn salur og án starfsmannaaðstöðu.

Byggingin er innan viðkvæmasta hluta haftasvæðis flugverndar og nýting hennar því háð viðeigandi skilyrðum.

Sýna fasteignir