TáknVeður í Keflavík 4°c 1 m/s
Sjá allar fréttir RSS  

Skrifstofur

Háaleitishlað 17 (827)

Starfsemi: Skrifstofur
Stærð: 806,3 m2

Upphaflega var byggingin byggð sem skrifstofur fyrir flugherinn. Byggingin er staðsett á flughlaðssvæði.

Endurnýjuð bárujárnsklæðning á stálgrind.

Byggingin er í ágætis ástandi. Í byggingunni eru skrifstofur, salur fyrir kennslu og starfsmannaaðstaða.

Byggingin er innan viðkvæmasta hluta haftasvæðis flugverndar og nýting hennar því háð viðeigandi skilyrðum.

Háaleitishlað 22 (839)

Starfsemi: Skrifstofur
Stærð: 2.101,1 m2

Upphaflega var byggingin byggð sem aðstaða símadeildar og póstmiðstöð varnarliðsins. Síðar hefur verið byggt við bygginguna eftir þörfum.

Steni klætt á forsteyptar einingar.

Byggingin er í ágætis ástandi. Í byggingunni eru skrifstofur, geymslusalur og starfsmannaaðstaða.

Byggingin er innan viðkvæmasta hluta haftasvæðis flugverndar og nýting hennar því háð viðeigandi skilyrðum.

Sýna fasteignir